Dýralæknastofa Hafnarfjarðar
Dýralæknarnir okkar og starfsfólk
Dýralæknastofa Hafnarfjarðar er ný og nútímaleg dýralæknastofa þar sem fagmennska, virðing og velferð gæludýra eru í fyrirrúmi.
Staðsetning
Stakkahraun 1, 220 Hafnarfjörður
Sími
55 222 44
Netfang
mottaka@dyrhfj.is
Opnunartími
Mán. – Fös.: 08:00 – 17:00
Staðsetning
Stakkahraun 1, 220 Hafnarfjörður
Sími
55 222 44
Netfang
mottaka@dyrhfj.is
Opnunartími
Mán. – Fös.: 08:00 – 17:00
Stefnan okkar
Notaleg heimsókn,
jákvæð upplifun
Við störfum eftir Fear free stefnunni, sem þýðir að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að draga úr hræðslu, kvíða og streitu hjá dýrunum sem koma til okkar.
Nánar um FearFreeStofan okkar
Sérhönnuð aðstaða — Aðstaða stofunnar er hönnuð með þarfir dýranna í huga. Hundar og kettir eru með aðskilin biðsvæði og skoðunarherbergi til að draga úr streitu og skapa rólegt og öruggt umhverfi.
Fagleg dýralæknaþjónusta — Við bjóðum upp á fjölbreytta dýralæknaþjónustu, þar á meðal almennar heilsufarsskoðanir, skurðaðgerðir, tannhreinsanir og aðra meðferð fyrir hunda og ketti.
Traust og samvinna — Við leggjum áherslu á góð samskipti við eigendur og vinnum í nánu samstarfi við þá. Með því að hlusta, útskýra og gefa tíma byggjum við upp traust sem er grunnurinn að góðri meðferð.
Gildin okkar
Gildi Dýralæknastofu Hafnarfjarðar
Þekking
Við byggjum ákvarðanir okkar á traustri þekkingu, reynslu og heildarsýn. Dýralæknar stofunnar sinna reglulegri endurmenntun og fylgjast með nýjustu þróun í dýralækningum, svo hvert dýr fái vandaða og örugga meðferð með velferð þess í forgrunni.
Virðing
Við berum virðingu fyrir öllum dýrum og eigendum þeirra. Við virðum mörk dýra og þarfir þeirra, eigendur og þeirra skoðanir, og skiljum hversu mikilvægt það er fyrir eigendur að fá góða þjónustu fyrir dýrin sín. Virðing birtist í öllum samskiptum okkar – við dýr, eigendur og samstarfsfólk.
Væntumþykja
Við sinnum dýrum af hlýju og umhyggju. Við skiljum hvað eigendum þykir vænt um gæludýrin sín og deilum þeirri væntumþykju með þeim, svo bæði dýr og eigandi upplifi öryggi, traust og hlýju í heimsókninni. Þessi sameiginlegu tengsl dýrs, eiganda og starfsfólks er kjarninn í öllu sem við gerum.
Starfsfólkið
Teymið okkar
Á Dýralæknastofu Hafnarfjarðar starfar hópur fagfólks sem deilir ástríðu fyrir velferð gæludýra. Við leggjum áherslu á samvinnu, fagmennsku og hlýlegt viðmót, þannig að bæði dýr og eigendur upplifi öryggi og traust við hverja heimsókn.