Fear Free dýralæknir í Hafnarfirði – streitulaus heimsókn fyrir gæludýr

Við störfum eftir Fear Free stefnunni

Heimsókn til dýralæknis á að vera ánægjuleg

Markmið okkar er einfalt: Að hver heimsókn á Dýralæknastofu Hafnarfjarðar sé góð upplifun – eitt skref í átt að betri heilsu og hamingjusamara lífi, án ótta.

Fear Free Certified Professional

Fear Free

Hvað felst í Fear Free nálguninni?

Hvað þýðir að vera Fear Free dýralæknastofa?

Á Dýralæknastofu Hafnarfjarðar leggjum við ríka áherslu á að hver heimsókn sé eins streitulaus, örugg og jákvæð og hægt er, bæði fyrir dýr og eiganda. Við störfum eftir Fear free nálguninni, sem þýðir að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að draga úr hræðslu, kvíða og streitu hjá dýrunum sem koma til okkar.

Hegðun og tjáning — Við lesum í hegðun og merkjamál dýranna og tökum tillit til þess í öllu sem við gerum.

Blíðleg nálgun — Við erum meðvituð um að nota blíðlega nálgun þegar við snertum dýr, skoðum þau og meðhöndlum.

Gómsætt nammi — Við notum hrós og mikið nammi til að skapa góða upplifun.

Hönnun rýmis — Við hönnuðum stofuna okkar út frá Fear free stefnunni, t.d. með tegundaskiptum biðstofum og skoðunarherbergjum og út frá litavali.s

Róandi umhverfi — Við notum róandi ferómón og forðumst óþarfa hávaða, sterka lykt, sterka liti og snöggar hreyfingar sem geta valdið óöryggi.

Samvinna með eiganda — Við bjóðum eigendum að vera með og taka þátt í ferlinu, svo bæði dýr og eigendur upplifi traust og ró.

Fyrir okkur er þetta ekki einungis ákveðin vinnuaðferð, heldur hugsanaháttur sem liggur að baki öllu sem við gerum. Við trúum því að góð meðferð byggist á samkennd, þekkingu og virðingu fyrir dýrum. Þegar dýrið upplifir sig öruggt, gengur allt annað betur – bæði læknisfræðilega og tilfinningalega.

- Starfsfólk Dýrlæknastofu Hafnarfjarðar

Ávinningur

Hver er ávinningurinn?

Fyrir gæludýrið

Dýrið lærir smám saman að dýralæknaheimsóknir eru ekki ógnvekjandi, heldur jafnvel eitthvað gott.

Það fær athygli, nammi og hrós. Þetta hefur bein áhrif á líðan þess, hjartslátt, hormóna og almennt öryggi.

Dýr sem upplifa minni kvíða við heimsókn fá oft nákvæmari greiningar, því líkaminn er ekki í varnarviðbragði.

Fyrir eigandann

Eigendur finna líka mikinn mun. Þeir þurfa ekki lengur að draga dýrið sitt inn á stofuna, upplifa minna stress sjálfir, og heimsóknir verða að jákvæðri samvinnu milli eiganda, dýrs og starfsfólks.

Við viljum að eigendur viti að við hlustum, útskýrum og tökum aldrei óþarfa áhættu eða ákvarðanir í flýti. Við vinnum alltaf út frá öryggi og trausti.

Heimsóknin

Þegar þið komið til okkar

Svona reynum við að tryggja streitulausa heimsókn.

1

Undirbúningur heima

Dýralæknaheimsóknin byrjar heima. Undirbúðu dýrið með jákvæðum hætti. Gefðu nammi og forðastu stress eða flýti. Ef þú átt kött, er gott að venja hann smám saman við búrið með því að tengja það við eitthvað gott nammi. Hafðu mjúkt og notalegt undirlag í búrinu. Ef dýrið er kvíðið, fylgdu ráðleggingum okkar um róandi aðgerðir eða lyf fyrir komu.

2

Koman á stofuna

Komdu tímanlega og reyndu að halda ró í kringum dýrið. Leyfðu dýrinu að skoða sig um á sínum hraða og láttu starfsfólk vita ef það er stressað. Við aðlögum móttökuna að þörfum dýrsins strax við komu. Hundar eru með sér biðstofu (til hægri þegar inn er komið) og kettir með sér biðstofu (fyrir aftan vegg við afgreiðsluborð). Kisum finnst gott að vera hátt uppi þegar þær eru óöruggar og við erum með stand fyrir kisubúr í biðstofunni.

3

Skoðunin

Dýralæknir skoðar dýrið þar sem því líður best – á gólfinu, uppi á borði, í fanginu eða í búrinu. Við notum mikið nammi (t.d. sleikimottur og Churu) til að dreifa athyglinni og tengja okkur við eitthvað gott. Allt fer fram á forsendum dýrsins.

4

Heimferðin

Ef dýrinu finnst erfitt að vera frammi, skaltu byrja á að fara með það út í bíl áður en þú gerir upp. Gefðu dýrinu tíma til að slaka á eftir heimsóknina og tengdu hana við eitthvað gott heima, eins og uppáhalds nammi, leik eða hvíld.