Þjónusta
Stofutímar
Árlegar heilsufarsskoðanir
Reglubundin heilsufarsskoðun er mikilvægur þáttur í að viðhalda góðri heilsu hunda, katta og smádýra og mælt er með henni árlega. Dýralæknir hlustar á hjarta og lungu, þreifar kvið og eitla, skoðar eyru, augu, tennur, feld, húð og klær og metur stoðkerfi og almennt heilsufar. Reglulegar skoðanir hjálpa til við að greina frávik snemma og stuðla að betri líðan gæludýrsins.
Bólusetningar
Reglubundnar bólusetningar eru mikilvægur þáttur í að vernda hunda og ketti gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Grunnbólusetningar hunda fara almennt fram við 8, 12 og 16 vikna aldur og grunnbólusetningar katta fara almennt fram við 12 og 16 vikna aldur. Endurtaka þarf bólusetningu 12 mánuðum eftir síðustu/seinni grunnbólusetningu. Hundar eru almennt bólusettir annað hvert ár eftir grunnbólusetningar, en kettir á 1–3 ára fresti eftir grunnbólusetningar, eftir því hvort þeir eru inni- eða útikettir og hversu mikilli smithættu þeir eru útsettir fyrir. Dýralæknir metur þörf á bólusetningu í hverju tilviki með hliðsjón af aldri, heilsufari og lífsháttum gæludýrsins.
Örmerkingar
Örmerking er örugg og varanleg leið til að auðkenna gæludýr. Lítil örflaga er sett undir húð, vinstra megin á hálsi, sem inniheldur einstakt auðkennisnúmer sem skráð er í sameiginlegan gagnagrunn Dýraauðkennis. Örmerking eykur líkur á að týnt dýr finnist aftur og er mikilvægur þáttur í ábyrgri umönnun gæludýra. Skylda er að örmerkja hunda, ketti og kanínur samkvæmt lögum.
Sníkjudýravarnir
Forvarnir og meðhöndlun gegn sníkjudýrum.
Heilsufarsskoðanir
Almenn heilsufarsskoðun felur í sér mat á ástandi gæludýrsins og greiningu á öllum þáttum sem geta haft áhrif á heilsu þess. Skoðunin er framkvæmd þegar dýrið sýnir einkenni eða þarfnast mats á heilsu sinni, og leiðbeinir eiganda um næstu skref í umönnun og meðferð.
Endaþarmskirtlar tæmdir
Tæming endaþarmskirtla ef þörf er á.
Útflutningsskoðanir
Skoðun og vottorð vegna útflutnings á dýrum.
Fóðurráðgjöf
Ráðgjöf um fæðu og næringu sem hentar dýrinu þínu.
Eyrnaskoðun
Við framkvæmum ítarlega eyrnaskoðun þar sem tekin eru sýni ef þörf krefur. Sýnin eru greind til að finna orsök eyrnasýkinga eða annarra vandamála, og dýralæknir leggur fram viðeigandi meðhöndlun til að tryggja bata og vellíðan gæludýrsins.
Klóaklipp
Við leggjum mikla áherslu á að klóaklipp sé ánægjuleg og örugg upplifun fyrir hunda og ketti. Þjónustan hentar bæði hundum sem eru vanir klippingu og þeim sem eiga erfitt með hana. Fyrir hundana sem eru hræddir eða krefjast aðlögunar, bjóðum við kennslu og aðstoð frá hundaþjálfara til að venja þá við klóaklipp á öruggan og rólegan hátt.
Spurt og svarað