Dýralæknir með hund Fear Free Certified Professional

Notaleg heimsókn,
jákvæð upplifun

Við störfum eftir Fear free nálguninni, sem þýðir að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að draga úr hræðslu, kvíða og streitu hjá dýrunum sem koma til okkar.

Kynntu þér Fear Free nálgunina

Starfsfólkið

Teymið okkar

Á Dýralæknastofu Hafnarfjarðar starfar hópur fagfólks sem deilir ástríðu fyrir velferð gæludýra. Við leggjum áherslu á samvinnu, fagmennsku og hlýlegt viðmót, þannig að bæði dýr og eigendur upplifi öryggi og traust við hverja heimsókn.

Viðskiptavinir

Hvað segja aðrir um okkur?

Við erum þakklát fyrir traustið sem okkur er sýnt. Hér að neðan eru nokkur orð frá viðskiptavinum okkar um upplifun sína af heimsóknum á stofuna.

Takk fyrir frábæra umönnun Matthildar, faglegt og hlýtt viðmót ásamt eftirfylgni eftir aðgerð. Ómetanlegt!

Matthildur og Theodóra

Við Púki komum í nudd til Berglindar, hundurinn bráðnaði í höndunum á henni og naut nuddsins. Hlýlegt og gott að koma til ykkar.

Auður og Púki

Frábær þjónusta bæði í afgreiðslu og meðhöndlun, skýrar og skilvirkar leiðbeiningar um áframhaldandi meðferðir. Það er mikið á sig lagt til að dýrunum líði vel af minni reynslu.