Dýralækningar
af virðingu og væntumþykju
Dýralæknastofa Hafnarfjarðar er ný og nútímaleg dýralæknastofa þar sem fagmennska, virðing og velferð gæludýra eru í fyrirrúmi.
Að stofunni standa Silja og Sólrún dýralæknar og Berglind hundanuddari og hundaatferlisráðgjafi. Þær deila sameiginlegri ástríðu fyrir dýraheilbrigði og heildrænni nálgun á meðferð og umönnun dýra. Við leggjum ríka áherslu á rólega, örugga og jákvæða upplifun fyrir bæði dýr og eigendur.
Stefnan okkar
Notaleg heimsókn,
jákvæð upplifun
Við störfum eftir Fear free stefnunni, sem þýðir að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að draga úr hræðslu, kvíða og streitu hjá dýrunum sem koma til okkar.
Nánar um FearFreeSérhönnuð aðstaða
Aðstaða stofunnar er hönnuð með þarfir dýranna í huga. Hundar og kettir eru með aðskilin biðsvæði og skoðunarherbergi til að draga úr streitu og skapa rólegt og öruggt umhverfi.
Fagleg dýralæknaþjónusta
Við bjóðum upp á fjölbreytta dýralæknaþjónustu, þar á meðal almennar heilsufarsskoðanir, skurðaðgerðir, tannhreinsanir og aðra meðferð fyrir hunda og ketti.
Traust og samvinna
Við leggjum áherslu á góð samskipti við eigendur og vinnum í nánu samstarfi við þá. Með því að hlusta, útskýra og gefa tíma byggjum við upp traust sem er grunnurinn að góðri meðferð.
Gildi Dýralæknastofu Hafnarfjarðar
Gildin okkar leiða allt starf stofunnar. Þau endurspegla hvernig við hugsum, vinnum og komum fram við dýr, eigendur og samstarfsfólk. Allt til að tryggja öryggi, traust og vellíðan í hverri heimsókn.
Þekking
Við byggjum ákvarðanir okkar á traustri þekkingu, reynslu og heildarsýn. Dýralæknar stofunnar sinna reglulegri endurmenntun og fylgjast með nýjustu þróun í dýralækningum, svo hvert dýr fái vandaða og örugga meðferð með velferð þess í forgrunni.
Virðing
Við berum virðingu fyrir öllum dýrum og eigendum þeirra. Við virðum mörk dýra og þarfir þeirra, eigendur og þeirra skoðanir, og skiljum hversu mikilvægt það er fyrir eigendur að fá góða þjónustu fyrir dýrin sín. Virðing birtist í öllum samskiptum okkar – við dýr, eigendur og samstarfsfólk.
Væntumþykja
Við sinnum dýrum af hlýju og umhyggju. Við skiljum hvað eigendum þykir vænt um gæludýrin sín og deilum þeirri væntumþykju með þeim, svo bæði dýr og eigandi upplifi öryggi, traust og hlýju í heimsókninni. Þessi sameiginlegu tengsl dýrs, eiganda og starfsfólks er kjarninn í öllu sem við gerum.
Teymið okkar
Á Dýralæknastofu Hafnarfjarðar starfar hópur fagfólks sem deilir ástríðu fyrir velferð gæludýra. Við leggjum áherslu á samvinnu, fagmennsku og hlýlegt viðmót, þannig að bæði dýr og eigendur upplifi öryggi og traust við hverja heimsókn.
Berglind Guðbrandsdóttir
Hundanuddari, hundaþjálfari og hundaatferlisráðgjafi
Lærður hundaþjálfari og -atferlisráðgjafi ásamt því að vera hundanuddari. Hún lærði hundanudd í Chicago School og Canine Massage og hefur mikinn áhuga á líkamlegri og andlegri endurhæfingu hunda. Áður en hún "fór í hundana" lauk hún BSc í sálfræði hjá Háskóla Íslands. Berglind á whippet hundinn Takt.
María Þorvarðardóttir
Móttaka
Selma Eyjólfsdóttir
Dýrahjúkrunarfræðingur
Silja Edvardsdóttir
Dýralæknir
Lærði dýralækningar í Kaupmannahöfn og vann í Svíþjóð að loknu námi. Í lok árs 2014 fluttist hún aftur heim til Íslands og hefur starfað hér síðan. Silja sækir reglulega ráðstefnur og námskeið bæði hér heima og erlendis. Hún er í framhaldsnámi í tannlækningum gæludýra hjá Improve í Þýskalandi. Önnur áhugasvið Silju eru m.a. svæfingarlækningar og verkjastillingar dýra. Silja talar reiprennandi íslensku, þýsku, dönsku og ensku. Silja er mikil kisukona og á kettina Satan og Heklu.
Sólrún Dís Kolbeinsdóttir
Dýralæknir
Lærði dýralækningar í Kaupmannahöfn en hún er einnig líffræðingur. Sólrún hefur mikinn metnað fyrir virðingarríkri nálgun við dýr og hefur einstakt lag á dýrum sem upplifa hræðslu við að koma til dýralæknis. Hún hefur mikinn áhuga á skurðlækningum og almennum dýralækningum hunda og katta. Sólrún á kisurnar Uglu og Kríu.
Auðveld Tímabókun
Hlökkum til að taka á móti ykkur
Við erum hér til að tryggja að gæludýrið þitt lifi sínu besta og heilsusamlegasta lífi. Bókaðu tíma í dag eða heyrðu í okkur.