Til baka í fræðslu
Almennt Fyrirbyggjandi Hundar Þjálfun
Umönnun öldunga
Hundar eldast misjafnlega hratt eftir stærð, tegund og erfðum. Stórir hundar eldast yfirleitt hraðar en litlir. Stóri Dani getur til dæmis verið öldungur þegar hann er 5-7 ára gamall, en þá er Chihuahua oft á besta aldri. Litlir og meðalstórir hundar sýna oft ellimerki eftir 8-10 ára aldur.
Það eru ýmsir þættir sem hafa áhrif á hvernig hundar eldast. Erfðir, næring, hreyfing, umhverfi og samspil allra þessara þátta hafa áhrif.
Hvernig sýna hundar merki um öldrun?
Þegar hundar eldast getur þú tekið eftir:
- Minnkandi hreyfifærni: Hundurinn þreytist fyrr, getur átt erfitt með stiga eða að hoppa upp í bílinn.
- Liðvandamál: Gigt og stirðleiki í liðum getur gert göngutúra og leik erfiðari.
- Tannvandamál: Skemmdar tennur geta valdið sársauka, minnkaðri matarlyst og þyngdartapi.
- Þyngdarbreytingar: Sumir hundar grennast með sjúkdómum (nýrnaveiki, hjarta- eða lifrasjúkdómar), en aðrir fitna ef hreyfing minnkar. Ofþyngd flýtir öldrun og eykur líkur á sjúkdómum.
10 ráð til að styðja öldunginn
- Árleg skoðun hjá dýralækni Hundar þurfa skoðun a.m.k. einu sinni á ári. Dýralæknir þreifar hundinn, hlustar á hjarta og lungu, skoðar tennur, húð, feld, augu og fleira ásamt því að bólusetja og/eða ormahreinsa ef þörf er á. Árleg blóðprufa er sniðug til að greina sjúkdóma snemma.
- Meta líkamlegt ástand Biðjið dýralækninn um að meta hvort hundurinn sé of þungur, léttur eða í kjörþyngd. Skrifið niður þyngd og fylgist með breytingum.
- Veldu gæðafóður Gefðu fóður sem hentar öldungnum bæði orkulega og næringarlega séð.
- Bætiefni fyrir liði og bein Glúkósamín, chondrotin og olíur geta stutt við liðheilsu. Ræddu við dýralækninn um réttu bætiefnin fyrir hundinn þinn.
- Sjúkrafóður ef nauðsyn krefur Mörgum sjúkdómum er hægt að halda í skefjum með réttu sjúkrafóðri.
- Tannheilsa Burstaðu tennur og farðu reglulega með hundinn í tannhreinsun ef þörf er á. Heilbrigðar tennur stuðla að betri næringu og vellíðan.
- Hreyfing og líkamlegt álag Góð hreyfing heldur liðum og vöðvum heilbrigðum. Veldu viðeigandi hreyfingu: lausaganga, stuttar göngur eða léttan leik. Byrjaðu rólega ef hundurinn er ekki vanur mikilli hreyfingu.
- Hugsaðu um andlega örvun Haltu öldungnum andlega hraustum með Kong-dóti, leikjum og þjálfun. Feluleikir, einfaldar kúnstir og hugræn verkefni örva heilann og minnka leiða.
- Hjálpartæki og þægindi
- Tröppur eða bretti til að komast upp í bíl, sófa og rúm.
- Mjúk bæli eða teppi fyrir viðkvæma liði.
- Mottur á gólfum til að bæta grip og koma í veg fyrir fall.
- Klístursprey á þófa fyrir hunda sem renna á sleipu gólfi.
- Lasermeðhöndlun hjálpar hundum með gigt. Hún er verkjastillandi og bólgueyðandi.
- Fylgstu með breytingum Hundar eldast misjafnlega hratt. Fylgstu með merkjum um aukna þreytu, þyngdarbreytingar, breytingu á feldgæðum, hreyfifærni og hegðun. Hver breyting getur gefið vísbendingu um heilsutap og þörf á frekari aðstoð.
Niðurstaða
Öldungur þarf aðra umönnun en ungt dýr, en með réttum ráðstöfunum getur hann lifað lengi við góða heilsu. Árlegar skoðanir, góð næring, hreyfing og andleg örvun eru lykilatriði til að halda öldungnum þínum lífsglöðum, heilbrigðum og virkum.