Til baka í fræðslu
Almennt
Öryggi hunda og katta í bíl
Að taka gæludýrin með í bílferð er oft nauðsynlegt, hvort sem það er til dýralæknis, í göngutúr, ferðalag eða heimsókn. En laus hundur eða köttur í bílnum getur verið stórhættulegur, bæði fyrir dýrið sjálft og fyrir aðra í bílnum, jafnvel farþega í öðrum bílum. Dæmi er um 2kg smáhund sem braut hnakkapúða í árekstri.
Við skulum skoða hvernig hægt er að tryggja öryggi og vellíðan dýranna (og annarra farþega) í bílnum.
Laus hundur eða köttur = Áhætta
- Hundar geta skotist fram í sætin við skyndilega hemlun eða árekstur og slasast og/eða valdið meiðslum á fólki í bílnum.
- Kettir, sérstaklega þeir sem eru ekki vanir bílferðum, geta orðið mjög stressaðir og reynt að flýja. Það getur endað illa ef þeir eru lausir.
- Laus dýr geta einnig truflað ökumanninn.
Búr – Öruggasta lausnin
Búr eru oft besta lausnin fyrir hunda og ketti í bílnum:
- Hundar: Best er að velja árekstursprófuð búr. Þau getur þó verið erfitt að nálgast og þau eru dýr. Plastbúrin eru sterkari en grindarbúr og brotna sjaldnar í árekstri. Grindarbúr geta brotnað og vírarnir stungist í dýr sem svo reyna að flýja úr búrinu. Veldu nýtt plastbúr, helst viðurkennt fyrir flugferðir þar sem þau eru yfirleitt sterkbyggð. Ef þú notar plastbúr þarftu að skipta því út á 3ja ára fresti þar sem plastið harðnar og verður brothættara.
- Kettir: Best er að nota plastbúr sem eru viðurkennd í flug. Ef þú ert að fara með köttinn til dýralæknis er alltaf mælt með búri sem hægt er að taka í sundur.
Búrið ætti alltaf að vera fast í bílnum, t.d. með bílbeltum eða festingum í skotti eða aftursæti.
Öryggisbelti fyrir hunda og ketti
Ef pláss leyfir ekki búr, eru til öryggisbelti og millistykki fyrir hunda og ketti:
- Passið að beltið passi vel og að dýrið geti ekki losað sig (algengt vandamál).
- Aldrei festa millistykki beint í hálsól (hætta á alvarlegum skaða við árekstur).
Grind og skilrúm
- Grindur geta lokað hund eða kött í aftursæti eða skotti. Athugið að þetta er einungis leið til að koma í veg fyrir að hundur komist fram í bílinn. Þetta er ekki öruggt fyrir dýr í árekstri og ef skottið opnast er hættan að dýrið sleppi út.
- Net og létt skilrúm duga ekki til að vernda dýr og farþega í árekstri.
Viðbótarráðleggingar
- Passaðu að dýrin hafi vatn, loftflæði og pláss til að sitja eða leggjast niður í lengri ferðum.
- Gerðu bílferðina að jákvæðri reynslu. Gefðu dýrinu smá nammi eða leikfang til að tengja ferðina við eitthvað skemmtilegt.
- Ef ferðin er löng, stoppaðu reglulega til að leyfa hundi að teygja úr sér og ketti að fá ferskt loft ef það er mögulegt.