Hvolpaglefs
Það er fullkomlega eðlilegt fyrir hvolpa að glefsa. Það eru tvær meginástæður fyrir því að hvolpar naga:
1) Þeir eru einfaldlega að kanna heiminn. Hvolpar skoða hluti með því að setja þá upp í sig, rétt eins og ungabörn gera.
2) Tannskipti. Þegar hvolpar eru um 4 mánaða gamlir byrja þeir að missa hvolpatennurnar og fullorðinstennur taka við. Á þessu tímabili klæjar þá mikið í góminn og þeir þurfa stanslaust að hafa eitthvað að naga.
Hvolpar átta sig ekki á því hversu beittar hvolpatennurnar eru eða hversu fast þeir bíta. Þess vegna þurfum við að kenna þeim hvað má og hvað má ekki.
Ekki skamma – Sýndu frekar hvað má naga
Það á ekki að skamma hvolpa fyrir að bíta eða naga. Í stað þess á að sýna þeim hvað þeir mega naga.
Góð regla er að vera með dót og/eða bein um alla íbúð fyrstu mánuðina:
- Eitt í vasanum
- Eitt undir pullunni í sófanum til að grípa í þegar hann stekkur á þig.
- Eitt í hverri hillu sem þú getur teygt þig í.
- Og hvar sem þér dettur í hug
Að sjálfsögðu er líka mikilvægt að hafa dót og bein á stöðum sem hvolpurinn nær auðveldlega til. Þá er alltaf hægt að grípa í eitthvað sem hann má naga og gefa honum það í staðinn fyrir það sem hann má ekki.
Ef hvolpurinn er að naga peysuna þína, sækir þú einfaldlega dót eða bein og réttir honum það í staðinn. Hrósaðu honum svo þegar hann byrjar að naga réttan hlut.
Hvað er best að naga?
Það getur verið krefjandi þegar hvolpurinn er með mikla nagþörf. Viðeigandi dót og bein geta hjálpað honum að hætta að glefsa í hendur og annað óæskilegt, og á sama tíma þroskað góm og tennur. Hér eru nokkur góð dæmi:
1. Kaðladót
Þykkir, sterkir kaðlar eða tauþræðir eru frábærir til að naga og togast. Þeir hjálpa til við að styrkja kjálka og eru öruggir þegar hvolpurinn er að skipta hvolpatönnum út fyrir fullorðinstennur. Passaðu að tauþræðir séu ekki of litlir svo hann geti ekki gleypt þá.
2. KONG og hol nagdót
Kong leikföng eru frábær fyrir hvolpa. Þau eru úr sterku gúmmíi sem hentar vel fyrir mikla nagþörf. Svörtu þola mest, bleiku/bláu (gerð fyrir hvolpa) þola minnst og rauðu eru þarna á milli. Þú getur fyllt Kong með nammi eða blautfóðri. Það tekur hvolpinn langan tíma að tæma Kong-ið og það þreytir hann andlega.
3. Forðastu hörð nagbein og leggi
Gættu þess að gefa hundinum ekki of hörð nagbein eða leggi. Dæmi um bein sem ætti að forðast eru nautaleggir, kindahorn. Hörð bein eru algengasta ástæða þess að hundar brjóta í sér tennurnar.
4. Hafðu fjölbreytni
Hvolpar geta orðið fljótlega leiðir ef sama dótið er alltaf í boði. Vertu með mismunandi dót sem þú róterar milli daga/vikna svo hundurinn sé alltaf spenntur að sjá hvað er í boði.
Hendur eru ekki leikfang
Ekki nota hendurnar til að leika við hvolpinn, að minnsta kosti ekki á meðan þú ert að kenna honum hvað má naga og hvað má ekki. Notaðu alltaf dót og hrósaðu þegar hann leikur sér fallega.
Ef hvolpurinn bítur fast í hendina á þér:
- Stendur þú upp
- Labbar frá honum í stutta stund
Eftir um það bil eina mínútu geturðu haldið leiknum áfram. Ef hvolpurinn byrjar aftur að bíta of fast, endurtekur þú ferlið.
Sumir vilja ýlfra hátt áður en þeir standa upp, en margir hvolpar æsast þá bara meira upp og skilja ekki hvað lætin þýða. Því er yfirleitt betra að standa einfaldlega upp og taka pásu frá leiknum.
Með tímanum lærir hvolpurinn að það að bíta of fast þýðir að leikurinn endar.
Hvolpaglefs hjá fullorðnum hundum
Sumir fullorðnir hundar eru enn með mikið hvolpaglefs. Það getur verið vegna þess að þeim var aldrei kennt hvað má og hvað má ekki. Aðrir hafa einfaldlega mjög mikla nagþörf.
Fyrir slíka hunda er mikilvægt að:
- Hafa alltaf mikið úrval af nagdóti og nagbeinum.
- Kenna hundinum að slaka á.
Margir fullorðnir hundar með mikla nagþörf naga hendur á fólki sem kemur í heimsókn. Til að koma í veg fyrir það:
- Réttu hundinum dót eða bein áður en gestirnir koma.
- Ef hann gerir þetta við þig, vertu með dót eða bein tilbúið við útidyrnar og réttu honum áður en þú heilsar.
Hrósaðu honum mikið þegar hann heldur á dótinu eða beininu. Ef hann sleppir því, hunsar þú hundinn og hættir að heilsa honum. Biddu gesti um að gera það sama.
Þegar nagið leiðir til skemmdarverka
Ef fullorðinn hundur er mikið að naga hluti heima og skemma, eru góðar líkur á að honum leiðist. Þá vantar hann verkefni, ekki endilega bara göngutúr, heldur eitthvað sem reynir á heilann.
Kynnið ykkur heilaleikfimi fyrir hunda, notið hugmyndaflugið og gefið hundinum tækifæri til að nota heilann.