Hvernig hundur hentar þér?
Þú hefur ákveðið að taka að þér hund. Þú gerir þér grein fyrir því að þetta er margra ára skuldbinding og að hundahald krefst bæði tíma, peninga og orku. Þetta er frábær byrjun, en áður en ákvörðunin er tekin er gott að staldra aðeins við og spyrja nokkurra mikilvægra spurninga.
Lífstíll þinn, húsnæði, umhverfi og fjölskylduaðstæður hafa öll áhrif á það hvaða hundur hentar þér best. Aldur, kyn, stærð og tegund skiptir líka máli. Með réttu og skynsömu vali verður hundahaldið mun ánægjulegra, bæði fyrir þig og hundinn.
Hvaða hlutverki á hundurinn að gegna í lífi þínu?
Fyrsta spurningin sem vert er að spyrja er einföld, en mikilvæg: Hvaða hlutverk á hundurinn að hafa?
Viltu veiðihund? Vaktara sem lætur vita ef eitthvað óvenjulegt gerist? Leikfélaga fyrir börnin? Eða einfaldlega nýjan fjölskyldumeðlim og vin til daglegra samskipta?
Hundar hafa verið ræktaðir í hundruð ára til ólíkra verkefna og þessi uppruni skiptir máli. Labrador var ræktaður til að sækja bráð óskaddaða, Pointer til að benda á bráð, Springer Spaniel til að koma fugli á flug og Greyhound til að hlaupa uppi bráð og drepa. Þó allir teljist veiðihundar eru þarfir þeirra, orkustig og hegðun mjög ólík.
Það þýðir þó ekki að veiðihundar eigi aðeins heima hjá veiðimönnum. Margir þeirra eru frábærir fjölskylduhundar, svo framarlega sem þeir fá útrás fyrir sitt náttúrulega eðli. Labrador sem fær að sækja hluti í vatni, Greyhound í beituhlaupi eða smalahundur á smalanámskeiði er oft sáttari, rólegri og hamingjusamari hundur.
Skiptir kyn hundsins máli?
Hvort fólk kýs tíkur eða rakka er að miklu leyti smekksatriði, en þó eru ákveðin einkenni sem margir kannast við.
Rakkar eru oft mjög félagslyndir og tengjast gjarnan mörgum. Ógeldir rakkar geta haft sterkt strokueðli og eiga það til að merkja í göngutúrum. Góður undirbúningur og félagsmótun getur þó minnkað líkurnar á að strjúka.
Tíkur eru oft heimakærari og mynda gjarnan mjög sterk tengsl við eina manneskju, þó þær tengist auðvitað allri fjölskyldunni. Flestar tíkur lóða um það bil tvisvar á ári og á þeim tíma þarf að gæta sérstakrar varúðar, bæði utandyra og í samskiptum við aðra hunda.
Skiptir aldur hundsins máli?
Bæði hvolpar og fullorðnir hundar hafa sína kosti og galla.
Hvolpar eru yndislegir en þeir krefjast mikillar vinnu. Þeir þurfa grunnþjálfun, félagsmótun, uppeldi og þolinmæði. Þú veist ekki alveg hvernig persónuleiki þeirra þróast, en á móti kemur að þú mótar hundinn frá grunni. Hvolpar kosta einnig oft meira, bæði í tíma og fjármagni, fyrstu mánuðina.
Fullorðnir hundar bjóða upp á meira öryggi. Persónuleiki þeirra er skýrari, orkustigið þekkt og oftast eru þeir þegar húsvanir. Fyrir marga, sérstaklega þá sem eru að fá sinn fyrsta hund, getur fullorðinn hundur verið frábær kostur. Það er líka fallegt að geta gefið hundi í leit að heimili annað tækifæri.
Skiptir stærð hundsins máli?
Stærðin segir ekki allt. Það eru til stórir hundar sem eru rólegir og auðveldir í umgengni og litlir hundar sem krefjast mikillar þjálfunar og athygli.
Það sem skiptir mestu máli er hæfni eigandans til að setja mörk, þjálfa hundinn og mæta þörfum hans. Stórir hundar eru almennt dýrari í rekstri og krefjast meiri styrks, en litlir hundar þurfa alveg jafn mikið uppeldi og reglur.
Hversu mikla hreyfingu geturðu boðið hundinum?
Allir hundar þurfa hreyfingu, bæði líkamlega og andlega. En þarfirnar eru mjög mismunandi.
Viltu hlaupa, fara í fjallgöngur eða langa göngutúra? Þá skiptir máli að velja hund sem þolir slíkt álag. Viltu rólegar göngur í hverfinu og kósý samveru heima? Þá henta aðrar tegundir betur.
Hundar dafna best þegar hreyfing og örvun passar við þeirra eðli og getu. Of lítil hreyfing eða krafa um hreyfingu sem hundurinn ræður ekki við, getur leitt til hegðunarvandamála.
Hversu mikið pláss hefurðu?
Pláss snýst ekki bara um fermetra, heldur líka um aðgengi að útivist. Margir stórir hundar henta vel í íbúð, á meðan sumir litlir hundar þurfa mikla útrás.
Jafnvel hundar með stóran garð þurfa reglulega göngutúra. Þeir þurfa að fá að uppgötva nýja lykt, breyta um umhverfi og félagsleg samskipti skipta þá miklu máli fyrir andlega vellíðan.
Feldhirða og umhirða
Sumir hundar fara lítið sem ekkert úr hárum en þurfa reglulega snyrtingu þar sem feldurinn síkkar rétt eins og okkar hár. Aðrir fara mikið úr hárum og krefjast tíðrar burstunar. Tvöfaldur feldur þarf sérstaka athygli til að koma í veg fyrir óþægindi og húðvandamál. Suma hunda þarf að baða mjög reglulega og kemba daglega til að koma í veg fyrir flækjur. Öðrum hundum þarf lítið sem ekkert að sinna hvað þetta varðar. Það er líka mismunandi hversu oft hundar þurfa bað vegna hundalyktar. Þetta er gott að hafa þetta í huga áður en tegund er valin.
Hreinræktaður hundur eða blendingur?
Bæði hefur sína kosti. Hreinræktaðir hundar gefa oft betri hugmynd um skapgerð, stærð og heilsufar, sérstaklega ef ræktandinn er ábyrgur og heiðarlegur. Góðir ræktendur eru ómetanlegir stuðningsaðilar.
Blendingar geta verið frábærir hundar, en ófyrirsjánlegri. Það er mikilvægt að kynna sér uppruna þeirra, hitta foreldra ef mögulegt er og spyrja út í heilsu og skapgerð.
Mýta um að blendingar séu alltaf heilbrigðari stenst ekki. Heilsufar fer fyrst og fremst eftir erfðum og ræktun.
Að lokum
Enginn hundur er fullkominn. En þú getur fundið hund sem hentar þér og þínum aðstæðum. Með því að vanda valið eykur þú líkurnar á farsælu sambandi sem endist í mörg ár.
Og ef þú ert í vafa, þá er alltaf góð hugmynd að ræða málin við dýralækni, áður en ákvörðunin er tekin.