Hengingarólar og áhrif þeirra á hunda
Hvað er hengingaról?
Hengingaról er ól eða keðja sem er hönnuð til að valda hundi sársauka eða óþægindum, þegar hann gerir eitthvað sem eigandinn telur rangt, með því að þrengja að hálsi hundsins. Þjálfarar sem enn nota hengingarólar kalla þetta stundum „leiðréttingu“, en nútímaleg hundaþjálfun byggir á öðrum grunni: jákvæðri styrkingu.
Nútíma hundaþjálfarar og vísindamenn telja notkun hengingaróla úrelta og skaðlega, og sumir kalla hana jafnvel ofbeldi. Margir nota ólina í góðri trú en gera sér ekki grein fyrir áhrifunum á hundinn.
Hvað sýna rannsóknir?
Áhrif hengingaróla hafa verið mikið rannsakaðar. Þar kemur í ljós að bæði bein og óbein notkun getur verið hættuleg:
- Bein notkun: Eigandi kippir í ólina til að „leiðrétta“ hundinn ef hann togar eða sýnir óæskilega hegðun.
- Óbein notkun: Hundur er alltaf með ólina á sér í göngutúr. Þegar hundurinn togar þrengist hún að hálsinum.
Sérfræðingar og rannsóknir sýna að ólarnar geta valdið margvíslegum skaða, oft án þess að eigandinn sjái það.
Helstu skaðlegu áhrif:
- Barkaskaði og skemmdir á vélinda
- Tog á hálsi og hálsliðum
- Yfirlið, tímabundin lömun á framfótum
- Taugalömun við barkakýli
- Minni máttur í afturfótum
- Almennur sársauki
Í sænskri rannsókn Hallgreen (1992) á mænuskaða kom í ljós að 91% hundanna með breytingar í hálsliðum áttu langa sögu af því að toga í taum eða fengið kippi frá hengingarólum.
Í annarri rannsókn Scotty Valadao á 400 hundum voru 63% skaddaðir á hálsi eða mænu. Þar sem hundarnir voru með árásarhneigð, höfðu 78% þeirra einnig skaða á hálsi eða mænu. Niðurstaðan sýnir skýr tengsl milli notkunar á hengingarólum og líkamlegs skaða.
Jim O’Neill, hundaþjálfari, mælir með einfaldri leið:
„Spyrðu hundaþjálfara hvort hann noti hengingarólar. Ef svarið er já, þá notar hann úreltar aðferðir sem geta verið skaðlegar hundinum.“
Í Þýskalandi fylgdu rannsóknarmenn 50 hundum sem notuðu hengingarólar og krufðu þá síðar. 48 þeirra höfðu skaða á hálsi, barka eða baki.
Hvað á að nota í staðinn?
Í stað hengingaróla er jákvæð styrking best:
- Hundurinn lærir á öruggan hátt án líkamlegs refsinga.
- Mistök valda ekki sársauka, heldur fær hundurinn einfaldlega nammi eða hrós þegar hann gerir rétt.
- Samband eiganda og hunds styrkist frekar en veikist.
Ef hundurinn dregur í tauminn, má nota t.d.:
- Beisli með krækju við bak og að framan – gefur þér betri stjórn án þess að valda skaða (t.d. Haqihana beisli sem fást hjá Dýralæknastofu Hafnarfjarðar)
- Jákvæðar þjálfunaraðferðir – umbun fyrir rétta hegðun
- Leikur og andleg örvun – minnkar tog og streitu
Niðurstaða:
Hengingarólar geta valdið alvarlegum líkamlegum skaða og streitu hjá hundum. Nútíma þjálfun byggð á jákvæðri styrkingu er bæði öruggari og árangursríkari, auk þess sem hún styrkir samband hunds og eiganda.