Til baka í fræðslu
Almennt Fear Free Hundar Þjálfun

Af hverju notum við nammi í hundaþjálfun?

Af hverju notum við nammi í hundaþjálfun?

Nammi er mikið notað í hundaþjálfun – en af hverju? Sem hundaeigendur og hundaþjálfarar berum við ábyrgð á því að hundunum okkar líði vel og að þjálfunin skili árangri. Matur er eitt öflugasta verkfærið sem við höfum. Hann hjálpar okkur að ná markmiðum í þjálfun, á sama tíma og hann gerir þjálfunina skemmtilega fyrir hundinn.

Þegar hundar njóta þess að vera þjálfaðir verður allt auðveldara. Samstarfið batnar, áhuginn eykst og árangurinn kemur hraðar. Fyllum því nammitöskurnar og höfum gaman! Ef þetta dugar ekki til að sannfæra þig, þá koma hér fimm skýrar ástæður fyrir því hvers vegna nammi á heima í hundaþjálfun.

Ástæða 1: Ástin á mat

Langflestir hundar elska nammi, og allir hundar þurfa mat til að lifa af. Matur er náttúrulegur hvati sem hundar skilja strax og bregðast fljótt við. Þegar við nýtum okkur eitthvað sem hundurinn vill raunverulega, eykst vilji hans til að taka þátt í þjálfuninni.

Ástæða 2: Þægindin

Nammi er einfalt í notkun. Það er auðvelt að stinga því í vasann, geymist vel og er þægilegt að taka með sér hvert sem er. Hundanammi er einnig mjög aðgengilegt og til í ótal útfærslum, sem gerir það að praktísku þjálfunartæki í hversdagslífinu.

Ástæða 3: Fjölbreytileikinn

Úrvalið af nammi er gríðarlegt og það er stór kostur. Við getum valið nammi eftir því hvað hver hundur kýs og stillt verðlaunin eftir erfiðleikastigi æfinganna.

Innkall í burtu frá ketti krefst oft „ofurnammi“ eins og kjúklings, lifur eða sardína. Að biðja hund um að setjast í stofunni krefst hins vegar yfirleitt mun minna. Þar duga oft bitar af þurrmatnum. Með þessu móti getum við verið sanngjörn og skýr í samskiptum við hundinn.

Ástæða 4: Eftirvæntingin

Matur gerir hunda glaða. Þegar nammi er notað í þjálfun skapast jákvæð eftirvænting. Hundurinn hlakkar til næstu æfingar vegna þess að hann tengir hana við eitthvað gott. Þjálfun verður ekki kvöð, heldur eitthvað sem hundurinn vill taka þátt í.

Ástæða 5: Bónusinn: Að breyta tilfinningum

Nammi er ekki bara verðlaun, heldur einnig öflugt tæki til að breyta tilfinningalegu ástandi hunda. Með gagnskilyrðingu getum við hjálpað hræddum eða óöruggum hundum að slaka á og upplifa erfiðar aðstæður á jákvæðari hátt.

Með því að para eitthvað sem hundurinn óttast við eitthvað sem honum finnst frábært, getum við smám saman breytt hræðslu í eitthvað hlutlaust, eða jafnvel eitthvað ánægjulegt.

Að lokum

Nammi er ekki mútur, ekki veikleiki og ekki „auðvelda leiðin“. Það er áhrifaríkt, siðferðilega rétt og hundavænt þjálfunartæki sem eykur bæði árangur og vellíðan. Þegar hundar njóta þjálfunarinnar, vinna þeir með okkur – ekki gegn okkur.