Að kveðja besta vininn
Gæludýrin okkar eru hluti af fjölskyldunni og því er ekkert skrýtið að flestir eigendur kvíði þeim tíma þegar þau þurfa að kveðja sinn besta vin. Því miður lifa gæludýr ekki jafn lengi og við, og þegar þau eru veik eða gömul er mannúðlegt að leyfa þeim að fara sársaukalaust.
Heimavitjun eða dýraspítali?
Við bjóðum upp á heimavitjun þar sem dýralæknir kemur heim til ykkar og aflífar dýrið í sínu örugga umhverfi. Heimavitjun er oft betri kostur fyrir hrædd eða mikið veik dýr. Ef dýrið upplifir kvíða í bíl eða við að mæta á dýralæknastofu er þetta góður kostur. Margir upplifa öryggi við að vera á eigin heimili og að geta haft ákveðna stjórn á aðstæðum í kringum ferlið.
Annar valkostur er að koma með dýrið á dýralæknastofuna. Sumum finnst gott að vera á hlutlausan stað og vilja ekki tengja heimilið við erfiðar stundir. Mörg dýr eiga líka mjög jákvæða upplifun af því að koma á dýralæknastofuna og finnst þar af leiðandi ekkert erfitt að mæta.
Hver verður viðstaddur?
Það er undir þér komið hvort þú viljir vera viðstaddur þegar dýrið fer. Það er misjafnt hvort fólk vilji vera viðstatt þegar gæludýr þess er aflífað. Það er allt í lagi að vera með og það er líka allt í lagi að treysta sér ekki til þess. Það er enginn ákveðinn aldur sem hægt er að miða við fyrir börn þar sem andlegur þroski þeirra er misjafnt. Foreldrar og börn þurfa oft að taka þessa ákvörðun í sameiningu.
Margir velja að vera með dýrinu á meðan það sofnar en fara áður en síðasta sprautan (sem stoppar hjartað) er gefin. Þetta er líka oft sú leið sem fólk ákveður þegar börn eru með.
Á Dýralæknastofu Hafnarfjarðar (og mjög líklega fleiri dýralæknastofum) gildir sú regla að engin dýr séu ein þegar þau deyja svo þegar eigendur treysta sér ekki til að vera viðstaddir er alltaf einhver á svæðinu sem er hjá dýrinu og strýkur því þar til dýrið er farið. Það þarf því ekki að hafa áhyggjur af því að enginn sé hjá dýrinu síðustu mínúturnar.
Ef fleiri gæludýr eru á heimilinu getur verið gott fyrir þau dýr að bera látna dýrið augum. Við mælum ekki með að þau séu með í öllu ferlinu þar sem það getur bæði verið stressandi fyrir dýrin og fyrir aðra fjölskyldumeðlimi. Oft þurfa dýr bara örfáar sekúndur til að átta sig á hvað hefur gerst, þegar öllu er lokið. Þetta kemur í veg fyrir að dýrið sé leitandi og skilji ekki hvert gamli félaginn fór.
Þetta má gera hvort sem aflífun fer fram í heimahúsi eða hjá okkur.
Aflífun fer fram á öruggan og sársaukalausan hátt
Fyrst er dýrið deyft niður með sprautu (annað hvort í læri eða í hnakka) sem lætur það sofna. Þetta ferli er rólegt, sársaukalaust og tekur mislangan tíma eftir heilsu dýrsins, allt frá hálfri mínútu upp í um 10 mínútur. Þetta er kveðjustundin. Þarna sofnar dýrið rólega og fallega.
Þegar dýrið er sofnað og eigandi er tilbúinn, er settur upp æðaleggur í framfót dýrsins. Þá er svo gefin önnur sprauta sem stoppar hjartað. Hjá köttum er þessi sprauta stundum gefin beint í hjartað (enginn æðaleggur settur upp) Sama hvort sprautan er gefin gegnum æðalegg eða beint í hjarta, finnur dýrið ekki fyrir þessu. Ferlið er alltaf hannað til að vera hraðvirkt og sársaukalaust.
Sum dýr taka smá andköf eða fá krampa eftir seinni sprautuna, en þetta veldur þeim engum sársauka. Það getur hins vegar verið erfitt fyrir eigendur að horfa á. Þetta er líkaminn að sleppa takinu og er eðlilegt. Þetta gerist ekki hjá öllum dýrum.
Eftir aflífun
Dýrin stífna á 30–60 mínútum og geta misst þvag eða hægðir, svo gott er að nota teppi eða lak undir þau. Augun lokast ekki alltaf sjálfkrafa og munnurinn getur opnast örlítið, sem er eðlilegt.
Brennsla og greftrun
Eftir aflífun eru þrjár leiðir sem hægt er að velja:
- Almenn brennsla: Dýrið er brennt með fleiri dýrum. Ekki er hægt að fá öskuna úr dýrinu. Þetta er ódýrara en sérbrennsla.
- Sérbrennsla: Dýrið er brennt í einkabrennslu og eigandi fær öskuna til baka í fallegri öskju eftir 1–3 vikur. Verð fer eftir þyngd dýrsins.
- Að jarða dýrið: Það er hægt að jarða dýrið á einkareit en hafið það í huga að margir þurfa að flytja eða selja jarðir sínar og þá getur verið erfitt að skilja besta vininn eftir. Það getur einnig verið erfitt að jarða dýrið yfir hávetur á Íslandi. Ef það þarf að geyma dýrið í meira en nokkrar klukkustundir þarf að geyma dýrið í frysti. Gætið þess að gröfin sé nógu djúp. Jarðvegurinn yfir gröfinni fellur á fyrstu vikunum eftir að dýrið er jarðað, sérstaklega þegar rignir.
Minningar og minnismerki
Margir eigendur vilja búa til loppufar með dýrinu eða nota leir til að varðveita minningu þess. Aðrir smíða krossa eða legsteina, grafa nafn dýrsins á steina eða kaupa sérstaka gæludýralegsteina. Þetta hjálpar til við að halda minningunni lifandi og skapa virðulegan stað til að minnast besta vinarins.
Hjá Dýralæknastofu Hafnarfjarðar bjóðum við upp á loppuför í sérstakri sand-öskju, ásamt loppu- og nebbafari úr bleki á blaði.