Til baka í fræðslu
Almennt Hundar Þjálfun

6 þefleikir sem hundurinn þinn mun elska

6 þefleikir sem hundurinn þinn mun elska

Þegar hvolpar fæðast eru þeir nánast blindir, en lyktarskyn þeirra er nánast fullmótað. Þefskynið er aðalskynfæri hunda og það skynfæri sem við mennirnir gleymum oft að nýta. Hundar hugsa um heiminn í gegnum lykt: hvað nágranninn var að elda, hvaða kisa hljóp í gegnum garðinn í gær og hvort tíkin í næsta hverfi sé enn að lóða.

Hundar eru þefsnillingar

Menn hafa um 6 milljónir lyktarnema, hundar allt að 300 milljónir. Sá hluti heilans sem greinir lykt er 40 sinnum stærri í hundum en í mönnum. Þetta gerir hundum kleift að finna týnda fjallamenn, greina krabbamein og uppgötva lík neðansjávar. Það er því til mikils að vinna með þessi einstöku hæfileika hundsins. Með þolinmæði og þefleikjum er auðvelt að endurvekja þessa hæfileika.

1. Finndu nammið

Þetta er einfaldur leikur sem eykur hæfni hundsins í að þefa.

  1. Feldu nokkra nammibita á augljósum stað í byrjun.
  2. Kallaðu á hundinn og láttu hann finna bitana.
  3. Þegar hundurinn finnur bitann, hrósaðu og verðlaunaðu (hann má borða bitana sem hann fann).

Aukið svo erfiðleikastigið smám saman. Felið bitana undir teppi, bakvið hluti eða á milli púða í sófa (ef hundurinn er ekki líklegur til að skemma hluti). Hægt er að nota leikfang sem fyllt er með nammi (t.d. Kong), eða færa leikinn út í garð til að gera leikinn smám saman erfiðari.

2. Veldu hendi

  1. Settu nammi í lófa og lokaðu honum.
  2. Sýndu hundinum lófan og leyfðu honum að þefa.
  3. Spurðu: „Hvar er nammið?“
  4. Opnaðu lófan þegar hundurinn finnur réttan stað og hrósaðu.

3. Lykt af nýju dýri

Þessi leikur hentar hundum með sterkt veiðieðli.

  1. Nuddaðu handklæði við annað dýr (hund, kött, kanínu o.s.frv.).
  2. Feldu handklæðið úti (bakvið tré eða á öruggan stað).
  3. Leyfðu hundinum að leita án vísbendinga.

Þú getur þróað leikinn með annarri lykt eða með lykt af öðrum dýrum. Sömueliðis geturðu gert leikinn erfiðari með því að láta líða tíma frá því handklæðinu var nuddað við dýr og þar til hundurinn fær að leita að því.

4. Feluleikur

Í þessum leik eru verðlaunin… þú sjálf/ur!

  1. Feldu þig á óvenjulegum stað, t.d. undir borði, rúmi eða í skáp.
  2. Leyfðu hundinum að finna þig.
  3. Þegar hann finnur þig, hrósaðu mikið og gefðu nammi eða leiktu við hundinn.

Útiverkefni: Feldu þig bakvið tré eða á öðrum öruggum stað og láttu sleppa hundinum til að finna þig. Aukið erfiðleikastig með lengri fjarlægð og lengri biðtíma.

5. Veldu rétta skál

  1. Settu nammi undir plastskál meðan hundurinn horfir.
  2. Hreyfðu skálina fram og til baka og spyrðu: „Hvar er nammið?“
  3. Þegar hundurinn finnur réttan skál, lyftu henni og hrósaðu.

Aukið erfiðleikastig með fleiri skálum. Þetta kennir hundinum að nota nefið í stað þess að giska.

6. Öðruvísi lykt

Hundar hafa gaman af að þefa upp annað en mat:

  1. Settu dropa af lavender- eða valerianolíu á uppáhaldsleikfang hundsins.
  2. Feldu leikfangið og búðu til „slóð“ með olíublettum.
  3. Leyfðu hundinum að fylgja slóðinni til að finna leikfangið.
  4. Notaðu hrós og leik sem verðlaun þegar hann finnur það.

Aukið erfiðleikastig með færri olíublettum eða lengri fjarlægð. Hægt er að nota aðrar örvandi lyktir eða nammi til að halda áhuganum uppi.

Þessir leikir styrkja þefskyn hundsins, örva hugann og gera daglegt líf skemmtilegra fyrir hann.